“Book Descriptions: VARÚÐ! Í ÞESSARI BÓK ERU RISAEÐLUR SEM ÉTA FÓLK!
Áður en Ævar varð vísindamaður var hann bara venjulegur strákur … eða kannski ekki alveg venjulegur. Hann langaði til dæmis ekkert að eiga vini og talaði helst ekki við neinn nema köttinn sinn, hann Einstein. En á ellefu ára afmælisdaginn hans breyttist allt! Þetta er bók um sjö bandóðar risaeðlur, stórhættulegan ungling, gagnsemi skotbolta, strætóbílstjóra í lífshættu og heimsins bestu félaga.
Risaeðlur í Reykjavík er æsispennandi saga fyrir lesendur á öllum aldri. Með bókinni efnir Ævar Þór Benediktsson loforð við þúsundir barna um allt land sem tóku þátt í lestrarátaki hans nýliðinn vetur og lásu samtals sextíu þúsund bækur. Fimm heppnir lesendur urðu svo að persónum í bókinni sem nú er komin út.
Teikningar: Rán Flygenring Bókin er prentuð með sérstöku letri sem auðveldar lesblindum að lesa.” DRIVE