“Book Descriptions: Nýr andstæðingur. Nýir bandamenn. Meiri máttur.
Rúmu ári eftir ævintýrið í hafinu er Elísa skyndilega stödd í ókunnum heimi. Þar kynnist hún fjórum ungmennum sem hafa svipaða krafta og hún. Gæslumenn grunnefnanna hafa verið kallaðir saman til að bjarga deyjandi heimi. En tekst þeim ætlunarverk sitt?
Þarna var hún!
Á upphækkuðum palli var skjannahvít stytta af konu. Hún sat á lágum kolli með bronslita hörpu í fanginu. Roðagullið bronsið var áberandi í marmarahöndunum og það glampaði á hljóðfærið í sólskininu. Elísa nálgaðist listaverkið, gjörsamlega hugfangin. Umhverfis styttuna var lágt grindverk. Á því hékk þunn steinplata með áletruninni:
Belinda og harpan.
Dulstafir, bók 1: Dóttir hafsins var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2020.” DRIVE