“Book Descriptions: ,,Ég velti því oft fyrir mér hvort laufin verði þess vör þegar þau byrja að fölna. Hvort litabreytingin komi aftan að þeim. Verða þau hissa þegar þau falla niður eða eru þau þá þegar horfin sjálfum sér?“
Sólrún ákveður að láta sig hverfa úr þjónustuíbúð fyrir aldraða og leggur af stað í ferðalag á puttanum. Förinni er heitið í Mývatnssveit en þangað telur hún sig eiga brýnt erindi. Margvíslegt fólk verður á leið hennar og sterkar minningar blandast inn í upplifun hennar, móðurþrá, ást og sekt, og svo dauðinn sem nálgast óðum.” DRIVE