“Book Descriptions: Ljóðabókin Kona lítur við er gáskafullt og femínískt furðuverk í þremur hlutum, fullt af eftirminnilegum myndum og ögrandi meiningum. Í verkinu er víða litið við, svo sem í sjó, saumaklúbbi, hárgreiðslustofu, bílskúr og fylgsni undarlegs óramanns. Ferðalaginu líkur loks í stórbrotinni útópíu. Kona lítur við er eftirtektarverð bók sem læðist aftan að lesendum.
Kona lítur við er önnur bók Brynju Hjálmsdóttur. Hún hefur áður sent frá sér ljóðverkið Okfrumuna sem hlaut tilnefningu til Fjöruverðlaunanna og Rauðu hrafnsfjaðrarinnar, auk þess sem hún var valin ljóðabók ársins af starfsfólki bókabúða.
LINDÝR
Kona æðir út í garð
Rótar og rótar og rótar í jörðinni snýr við steinum og laufblöðum gömlu pallaefni og plastpokum til að finna þá
Sniglana sem hún rekur á hol með silfurgaffli safnar í lítið skrín til að færa honum
Lækninum sem leggur huggandi orð í munna og hryggleysingja í hylki sprautar þeim í varir svo þær megi fyllast og blása út
Svo þær megi minna á tvo digra snigla í ástríku faðmlagi” DRIVE