“Book Descriptions: Þurfum við að endurhugsa samfélög okkar frá grunni? Eru það hinir gæfustu sem lifa af? Er heimurinn virkilega að farast? Búum við í tækniræði? Hvað verður um óhemjurnar?
Fyrir nokkrum árum féllust Sverri Norland hendur andspænis þeim tröllauknu áskorunum sem heimsbyggðin stendur frammi fyrir — mengaðri náttúru, útrýmingu dýrategunda, yfirtöku tækninnar, samþjöppun auðs á fárra hendur. Hér rekur hann hvernig honum tókst að vinna sig út úr þeirri lægð og á vit bjartsýnni aðferða til að takast á við krefjandi verkefni framtíðarinnar.
Stríð og kliður er leiftrandi hugmyndarík og ögrandi bók sem talar til lesenda á öllum aldri. Höfundur sækir jöfnum höndum í eigið líf og skrif vísindamanna og skálda í aldanna rás og útkoman er frumleg og hrífandi glíma við margar stærstu spurningar samtímans.” DRIVE