“Book Descriptions: Gömul brúða þakin hrúðurköllum en með nisti um hálsinn er dregin úr sjó með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Forstöðumaður vistheimilis er sakaður um alvarlegan glæp. Útigangsmaður finnst myrtur. Og ferðamenn hverfa sporlaust.
Í Brúðunni eru Huldar lögreglumaður og Freyja sálfræðingur í aðalhlutverki í magnaðri glæpasögu. Sagan talar beint inn í samtímann, rétt eins og fyrri bækur Yrsu Sigurðardóttur þar sem Huldar og Freyja eru aðalpersónur. Bækurnar um þau hafa fengið fádæma lof og hlotið ýmis verðlaun á alþjóðavettvangi.” DRIVE