“Book Descriptions: „Hann hafði verið maðurinn í lífi mínu, með honum átti ég fallegustu og æðisgengnustu daga og nætur ævinnar á dögum undirliggjandi ótta og einræðisstjórnar Þýska alþýðulýðveldisins. Af hverju hvarf hann fyrirvaralaust úr lífi mínu? Af hverju heyrðist ekkert í honum eftir að múrinn féll? Hafði hann eitthvað að fela?“
Kristín Jóhannsdóttir hélt til náms austur fyrir járntjald árið 1987. Sú vist átti eftir að marka hana fyrir lífstíð. Í tvo áratugi sat hún á sér en gat svo ekki meir. Hafði maðurinn sem hún elskaði bara verið ómerkilegur Stasí-njósnari? Hvað með aðra vini sem hún eignaðist á þessum sögulegu tímum?
Kristín Jóhannsdóttir er forstöðumaður Eldheima í Vestmannaeyjum. Hún var um langt árabil fréttaritari Ríkisútvarpsins í Berlín. Ekki gleyma mér er áhrifamikil minningasaga þar sem hún gerir upp heitar nætur í köldu stríði í einræðisríki á fallanda fæti.” DRIVE