“Book Descriptions: Enginn tekur eftir Sögu. Þannig hefur það alltaf verið. Hún sér líka hluti sem enginn annar sér en er löngu búin að læra að þegja yfir því. Eftir að húshjálpin í kjallaranum hverfur sporlaust og í hennar stað birtist skuggalegur óvættur fær Saga loks skýringu á því hvers vegna hún er öðruvísi en aðrir. En það er skýring sem erfitt er að horfast í augu við og um leið upphafið að ótrúlegu ævintýri.
Skuggasaga – Arftakinn er fyrsta bók Ragnheiðar Eyjólfsdóttur, margslungin og spennandi furðusaga fyrir alla aldurshópa sem bar sigur úr býtum í samkeppninni um Íslensku barnabókaverðlaunin 2015.” DRIVE