“Book Descriptions: Þessi bók geymir magnaða frásögn af ferðalagi manns inn í heim stjórnleysis, heim sem sumir þekkja, margir óttast en allir ættu að leitast við að skilja betur. Saga Héðins Unnsteinssonar er öðrum þræði sigursaga en líka saga um baráttu við fordóma, kerfið og jafnvel tungumálið sjálft. Hvað er annars að vera heilbrigður? Hvernig losnar maður við „sjúk-dóm“? Vertu úlfur er einlæg, gagnrýnin og hispurslaus frásögn af falli og upprisu manns sem eitt sinn var greindur með geðhvörf. Héðinn hefur starfað á sviði geðheilbrigðismála í tvo áratugi, sem sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu og hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, auk þess sem hann hefur kennt, haldið fyrirlestra og skrifað fjölda greina um þessi mál.
„Héðinn hefur ætíð veitt mér innblástur. Á ferðalagi sínu milli skynsviða, frá ljósi í dimmu og aftur til baka, hefur hann öðlast skýra sýn sem á erindi við alla.“ John Bowis, fyrrv. heilbrigðistráðherra Bretlands og talsmaður Evrópuþingsins á sviði heilbrigðismál
„Reynslusaga Héðins er miklu meira en persónuleg frásögn af ferðalagi einstaklings gegnum þjáningar, uppgötvun, skilning og bata. Bókin er einnig tilfinningaríkt og sannfærandi ákall um von, virðingu, frelsi og mannréttindi; einstaklingssaga sem heilbrigðiskerfið allt getur dregið lærdóm af.“ Benedetto Saraceno, prófessor í alþjóðaheilbrigðismálum við Nova univeristy í Lossabon og framkvæmdastjóri WHO í geðheilbrigðismálum” DRIVE