Elly
(By Margrét Blöndal) Read EbookSize | 23 MB (23,082 KB) |
---|---|
Format | |
Downloaded | 612 times |
Last checked | 10 Hour ago! |
Author | Margrét Blöndal |
Svo vel vandaði hún til verka að allt hljómaði þetta eins og hún þyrfti ekkert fyrir því að hafa. Tilviljun réð því að Elly byrjaði að syngja á dansleikjum. Sjálf ætlaði hún sér að verða rithöfundur og leikkona, en sautján ára tók hún þátt í söngprufu sem KK-sextettinn efndi til og þá voru örlög hennar ráðin.
Reynslan var hennar skóli og vinsældir hennar miklar þrátt fyrir andstreymið sem fylgdi því að fást við dægurtónlist á árum áður, þá list sem margir litu hornauga. Elly var dul að eðlisfari og forðaðist sviðsljós fjölmiðlanna. Því varð líf hennar stundum efni í sögusagnir og slúður sem hún hirti sjaldan um að svara.
Hver var hún, þessi kona sem heillaði karlmenn á skemmtistöðum og vakti afbrýðisemi kvenna, gekk þrisvar í hjónaband, drakk forboðið snákablóð og smyglaði sögufrægum apa til Íslands? Margrét Blöndal segir ævisögu Ellyjar Vilhjálms og leitar víða fanga eftir heimildum. Hér er sögð heillandi saga af konu sem bjó yfir óræðri dulúð og töfraði marga, konu sem aldrei gafst upp, sjálfstæð til síðasta dags.”