“Book Descriptions: Ung munaðarlaus stúlka gefur upp barn sitt í þeirri trú að það sé öllum fyrir bestu. Þrátt fyrir að hafsjór og heimsálfur skilji þau að gleymir hún aldrei litla drengnum sínum. Áratugum síðar fléttast líf þeirra aftur saman á örlagaríkan hátt. Litli drengurinn er orðinn fulltíða maður, hefur klifrað metorðastigann og er kominn í valdastöðu í samfélaginu. En hann á sér leyndarmál sem geta kollvarpað tilveru hans. Móður hans líður eins og hún hafi brugðist honum og er tilbúin að leggja allt í sölurnar syni sínum til bjargar. Hversu langt er flokkurinn tilbúinn að ganga svo ekki komi kusk á hvítflibbann?
Bertelsen: Utan seilingar er áhrifamikið skáldverk sem spannar stórt sögusvið, allt frá sakleysi bernskunnar á fimmta áratugnum til hringiðu stjórnmálanna á áttunda og níunda áratugnum.
Höfundurinn Erla Sesselja Jensdóttir vefur hér listilega við heiminn sem hún skóp með frumraun sinni, Hudson: Yfir hafið og heim, sem nýtur gífurlegra vinsælda hjá hlustendum Storytel.” DRIVE