“Book Descriptions: Laufey Einarsdóttir hefur lifað viðburðaríka ævi. Ung ferðaðist hún með rómuðum fimleikaflokki ÍR víða um lönd. Var viðstödd Ólympíuleikanna í Berlin 1936.
Á heimleið hitti hún mannsefni sitt, Jan Jedlicka og hélt til Tékkóslóvakíu í ársbyrjun 1938.
Örlaganornir spunnu vef sinn - nasistar réðust inn í hið nýja fósturland Laufeyjar. Evrópa stóð í ljósum logum. Í september 1944 hernámu skæruliðar smábæinn Ruzomberok. Hundruð manna voru handteknir. Þeirra á meðal Jan Jedlicka. Hans biðu grimm örlög.
Í maí 1945 gáfust nasistar upp. Nýir herrar komust til valda í Tékkóslóvakíu. Laufey var hneppt í fangelsi og send í fangabúðir í Krupina.
Laufey Einarsdóttir átti þann draum einan að lifa í friði með manni sínum en varð leiksoppur á vettvangi heimsviðburða.” DRIVE