“Book Descriptions: Þegar besta vinkona Sögu erfir hús eftir afa sinn á Eyrarvík, Berntsenhöllina, lítur hún á það sem einstakt tækifæri til að prófa eitthvað alveg nýtt.
Saga flytur úr borginni til Eyrarvíkur á Vestfjörðum, í samfélag sem er fámennt og náið og þar sem aðkomufólk er sjaldséð. Saga ætlar sér aðeins að dvelja tímabundið í bænum á meðan hún gerir húsið upp, hugmyndin er að stofna þar gistiheimili. Hún sogast þó fljótt inn í samfélagið og aflar sér bæði vina og óvina á staðnum. Hvernig reiðir borgarbúanum Sögu af í litlu samfélagi þar sem allir eru með nefið í málum hvers annars? Hvernig taka íbúar Eyrarvíkur nýbúanum? Mun ástin einhvern tímann banka uppá hjá Sögu?
Sigrún Elíasdóttir er sagnfræðingur og hefur áður sent frá sér barnabókaþríleikinn Ferðin á heimsenda auk nokkurra námsbóka. Eins er hún hlaðvarpsstýra Myrka Íslands sem skoðar hörmungar og hamfarir Íslandssögunnar. Í sögunni um Eyrarvík kveður við annan tón. Hér er á ferðinni rómantísk saga með miklum húmor.” DRIVE