“Book Descriptions: Marko og Stella, litla systir hans, eru skyndilega stödd á skrítnum stað.
Marko hefur á tilfinningunni að eitthvað slæmt hafi gerst en man ekki hvað. Hann leitar að leiðinni heim og rekst þá á ýmsar furðuverur, eins og Rösk, Verkil og Beru, sem búa yfir leyndum hæfileikum. Furðuverurnar vilja gera vistinasem besta fyrir systkinin og leiða Marko í rétt átt.
Að breyta heiminum er ævintýraleg saga um að finna eigið hugrekki - og í leiðinni jafnvel tilganginn með öllu saman.
Ingibjörg Valsdóttir lauk MA-prófi í hagnýtri ritstjórn og útgáfu frá HÍ. Ingibjörg er gefin fyrir lestur, spjall og almenn notalegheit. Hennar uppáhaldsiðja er að skrifa og þýða.