“Book Descriptions: Prestsetrið eftir Ármann Jakobsson er bráðskemmtileg og spennandi saga, en þetta er sjötta bók hans um lögregluteymi Kristínar og Bjarna, en hver þeirra er sjálfstæð. Sigurjón Sighvatsson hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn á Tíbrá úr sömu seríu.
Kristín lögreglukona erfir óvænt gamalt prestsetur á landsbyggðinni, ásamt hálfbróður sínum. Setrið er á jörðinni Stóru-Hlíð þar sem eru aðeins fáein íbúðarhús önnur og eitt gistiheimili. Kristín sér húsið sem kærkomið athvarf frá glæpaerlinum í höfuðborginni. Á staðnum býr lítill en fjölskrúðugur hópur fólks á ólíkum aldri, á ólíkum stað í lífinu og með ólíkar þarfir og langanir – og einn morðingi.” DRIVE