“Book Descriptions: "Hvað breytist þegar börnin vaxa úr grasi og þú ert ekki lengur upptekin í daglegu amstri við að skutla á æfingar eða versla í matinn? Hverfur áreitið með árunum eða vex það með börnunum?"
Hálfsofandi og áhugalaus liðast Bjarni í gegnum lífið sem er orðið endurtekning í ferköntuðum veruleika þar sem allt er annaðhvort svart eða hvítt. Fátt kemur lengur á óvart eða vekur tilhlökkun. Líf eiginkonu hans er hinsvegar eins og auglýsing í lífstílsblaði. Innanhússhönnuður og fagurkeri með næmt auga fyrir hlutunum í kringum sig skapar hún fallega umgjörð utan um rými af öllum stærðum og gerðum.
En ekki er allt sem sýnist. Undir yfirborðinu eru leyndarmálin vel geymd innan saumaklúbbsins og ýmislegt dregið út úr skápnum og lagt á borð yfir kjaftasögum og kokteilum.
Miðpunktur er fjörmikil og grátbrosleg samtímasaga með hárbeittum tón sem veitir innsýn í líf hjóna í úthverfi Reykjavíkur sem fást við breytingar sem fylgir því að eldast. Hvernig tæklum við seinni hálfleik þegar handrit lífsins hefur breyst með tímanu og breytingaskeiðið skellur á okkur? Náum við að fylgja þessum breytingum eftir eða þráum við að brjótast út úr þessu öllu og fylgja gráa fiðringnum. Hverfur lífsneistinn... þegar við áttum okkur á að við erum týnd á miðjum vegi, stödd á miðpunktu lífsins hvort sem okkur líkar betur eða verr?