“Book Descriptions: Hörður Grímsson rannsakar alvarlega líkamsárás á glæpaforingja en árásarmaðurinn, dópsalinn William Smári Clover, gengur laus. Smári er því bæði hundeltur af lögreglu og misindismönnum í hefndarhug. Á sama tíma rænir siðblindur maður mánaðargamalli dóttur sinni og ætlar með hana úr landi. Móðirin örvæntir þegar kerfið bregst en kallinu er svarað úr óvæntri átt. Leikurinn berst út á land og fyrr en varir streyma undirheimahrottar út á þjóðveginn og Hörður fylgir þeim fast á hæla – ungbarn er í lífshættu og tíminn að renna út. Stefán Máni gefur ekkert eftir í þrettándu bók sinni. Framvindan er hröð og spennan magnast fram á síðustu blaðsíðu!” DRIVE