“Book Descriptions: Árið er 1936 og í friðsælum austfirskum firði er ung stúlka vakin árla morguns af ókunnugum manni. Hann færir henni fréttir sem breyta lífi hennar á svipstundu.
Elísabet þarf upp frá því að treysta á sjálfa sig í ferðalagi frá fábreyttu sveitalífi til Reykjavíkur stríðsáranna þar sem hún kemst að því hvort það sé í raun og veru draumur að vera með dáta. Hugur hennar leitar út fyrir landsteina og liggur leiðin til fyrirheitna landsins. Ein í ókunnu landi mætir hún margvíslegum erfiðleikum en örlögin leiða hana að lokum heim á ný.
Hudson - Yfir hafið og heim er saga um vináttu, ástina og hjartasár, sigra og vonbrigði. Ljúfsár og falleg örlagasaga munaðarlausrar stúlku sem vex úr grasi í veröld sem var.
Erla Sesselja Jensdóttir ryður sér rúms með einstakri skáldsögu.” DRIVE