“Book Descriptions: Sumarblóm og heimsins grjót er grípandi örlagasaga um ást og vináttu, vonir og vonbrigði, flókin fjölskyldubönd – en ekki síst um aðstæður kvenna og óvenjulegar leiðir til að bjarga sér í lífsins ólgusjó. Í byrjun síðustu aldar blasir fátt annað við fátækri stúlku á Seyðisfirði en að feta sömu braut og formæðurnar; giftast, eignast börn, strita ævilangt undir sömu fjöllum. En Sóleyjar bíður öðruvísi líf og örlögin bera hana burt úr firðinum, til móts við nýja tíma og nýjar hugmyndir. Þegar hún stendur uppi ein með nýfætt barn þarf hún að gangast undir samkomulag sem færir henni bæði frelsi og fjötra. Seiglan fleytir henni gegnum brimrót áfalla og erfiðleika, lífsgleði og traustir vinir halda henni uppi þegar reynir á. Og stundum virðist hamingjan í sjónmáli. Sumarblóm og heimsins grjót Sigrún Alba Sigurðardóttir hefur áður skrifað fræðibækur og greinar en þessa fyrstu skáldsögu sína byggir hún að hluta til á raunverulegum atburðum og persónum.” DRIVE