“Book Descriptions: Þegar Ásdís Halla Bragadóttir fór að forvitnast um fjölskyldu blóðföður síns sem hún kynntist á fullorðinsárum var fátt um svör þegar hún spurðist fyrir um einn mann: Dr. Moritz Halldórsson. Af hverju stafaði þessi þögn um íslenskan lækni sem starfaði í Kaupmannahöfn og Vesturheimi? Forvitni hennar var vakin.
Eftir heimildaleit í fjórum löndum tókst Ásdísi Höllu að svipta hulunni af ævintýralegu lífshlaupi manns sem átti sér stóra drauma og fjölskylduleyndarmálum sem aldrei áttu að verða afhjúpuð. Inn í söguna fléttast mestu fjöldamorð í sögu Danmerkur, sjálfstæðisbarátta Íslendinga, Vesturferðir, helstu ráðamenn þjóðarinnar – og Kristján níundi Danakonungur.” DRIVE