“Book Descriptions: „Mig fór að gruna að kannski væru sögurnar mínar þeirrar náttúru að þögnin gæti ekki falið þær.“
Ungur maður ætlar að leita uppi ellefu hálfsystkin sem öll eru fædd á sama árinu, ástfælinn bóksali gengur aftur og fylgist með nýjum lesendum, ólíkar systur reka saman sjoppu í Þingholtunum á meðan óreglumenn krunka sig saman á nýju tilvistarsviði.
Einmana loftskeytamaður er í sambandi á öldum ljósvakans en skrifar skáldverk þess á milli. Hann fyllist tortryggni þegar aðrir rithöfundar eru á yfirskilvitlegan hátt á undan honum að koma út bókum hans. Með aðstoð vísindanna tekst honum að snúa vörn í sókn.
Steinunn G. Helgadóttir myndlistarkona hefur getið sér gott orð fyrir ljóðabækur sínar. Hér segir hún sögur loftskeytamannsins og fangar jafnframt íslenskan veruleika í fortíð, nútíð og framtíð.” DRIVE