“Book Descriptions: „Ætíð hef ég átt samastað, að minnsta kosti hefur aldrei farið svo, að ég hafi þurft að vera hvergi …“
Þessi bók er ekki ævisaga, og varla heldur endurminningar í venjulegum skilningi, en höfundurinn framkallar í huga lesandans þennan samastað sem hún átti sér í tilverunni, hvort sem hann var í Bæjarsveit í Borgarfirði, Reykjavík, Kaupmannahöfn eða annars staðar. Umhverfi, þjóðlífi og fólki er hér lýst af lifandi nærfærni og þeim stílþrótti sem fáum er gefinn.
Málfríður Einarsdóttir er mörgum bókmenntavinum kunn af kvæðum sínum frumortum og þýddum og af frásögnum og ritgerðum sem birst hafa í tímaritum og blöðum; einna fyrst vakti hún eftirtekt fyrir kveðskap sem prentaður var í tímartinu Helgafelli skömmu eftir 1940.” DRIVE